Útskriftir og verðlauna-afhendingar

Undanfarin ár hef ég séð um útskriftir og verðlaunaafhendingar

Útskriftir og verðlaunaafhendingar sem sitja eftir

Viðburðastjóri.is sér um heildarumgjörð útskrifta og verðlaunaafhendinga fyrir skóla, fyrirtæki og stofnanir. Við skipuleggjum daginn frá fyrsta punkti - val á sal, sviðsetningu, hljóð og myndkerfi, dagskrá og móttöku gesta - svo athöfnin verði viðeigandi og eftirminnileg fyrir þá sem eru á sviðinu og gesti þeirra.

Við höfum aðstoðað við útskriftir menntaskóla og háskóla, sem og verðlaunaafhendingar á vegum fyrirtækja og fagfélaga. Áhersla er lögð á fagmennsku í framkvæmd, réttan hátíðleika og að ekkert atriði falli milli skips og bryggju á sjálfum deginum.