Skottmarkaður Hafnarfjarðar

Í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ var skipulagður og útfærður vel heppnaður Skottmarkaði í Júní og Ágúst 2026. Frétt og myndir má sjá hér fyrir neðan.

Skottmarkaður Hafnarfjarðar sló í gegn í annað sinn.

Skottmarkaður Hafnarfjarðar var haldinn í annað sinn í gær, sunnudaginn 16. ágúst, á bílaplaninu við Hafnarfjarðarkirkju. Tæplega 50 bílar fylltu svæðið af alls kyns gersemum, góðum kaupum og skemmtilegri stemningu. Veðrið var sannkallað sumardagaveður, sólin skein og gestir streymdu á markaðinn, margir hverjir gangandi eða hjólandi.

Skottmarkaðurinn er frábær vettvangur fyrir fólk til að selja það sem það á ekki lengur not fyrir og gefa hlutum þannig nýtt líf. Gestir gátu gengið á milli bíla og skoðað fjölbreytt úrval af notuðum fatnaði, leikföngum, tölvuleikjum, garni og ýmsum öðrum munum – og að sjálfsögðu gert góð kaup.

Stemningin var einstaklega góð og greinilegt að Skottmarkaðurinn er viðburður sem á heima í Hafnarfirði. Hafnarfjörður er þekktur fyrir einstaklega flotta viðburði allt árið um kring. Hugmyndin um að sameina góð kaup, samfélag og endurnýtingu virðist falla vel í kramið hjá bæjarbúum og gestum.

Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og Viðburðastjóra.is og er greinilegt að áhuginn er mikill. Fyrsti Skottmarkaður Hafnarfjarðar var haldinn í júní og þar gafst fólki einnig tækifæri til að selja muni sem annars hefðu mögulega safnað ryki heima.

Skottmarkaður Hafnarfjarðar er kominn til að vera! Hafnarfjarðarbær, gestir, þátttakendur og Viðburðastjóri.is, sem sá um skipulag og framkvæmd viðburðarins, voru hæstánægð með útkomuna.

Við hlökkum því til næsta sumars, þegar við stefnum á að halda næsta Skottmarkað Hafnarfjarðar!

Drónamyndir teknar fyrir Hafnarfjarðarbæ frá Guðmundi Fylkissyni.